Tuesday, July 06, 2004

Nýtt blogg

Ég hef formlega gefist upp á blogger og ætla að flytja mig á íslenska kerfið, er núna inn á http://blog.central.is/wannabeslimmy/ endilega komið þangað og kommentið. Kær kveðja Fresinius

Monday, July 05, 2004

Dagur 26

7:30 sykurskertur jarðaberjagrautur með matreiðslurjóma (frekar óhollt ég veit)
9:30 1 ferskja
12:00 1 skál tær grænmetissúpa, 2 sn. múslíbrauð með L&L, 2 bátar appelsína, 2 bátar kíwí, 1 eplabátur, 1 perubátur, vatn
15:00 1 epli rautt
17:15 1 ávaxtastöng (fíkju)
19:30 2 low carb tortillur, hakk með tómötum, mais, lauk og tacokryddi, 2 tsk. sýrður rjómi, 4 tsk salsa sósa, ca 6 þunnar ostsneiðar, pepsi max
20:15 harðfiskur og L&L, pepsi max

Hreyfing: Sló og rakaði garðinn hjá foreldrum mínum, kallinn hjálpaði til - en samt púl :)

Er bara sátt við daginn í dag...ætla ekki að kaupa svona jarðaberja graut aftur, það er ekki nógu holllt.

Sunday, July 04, 2004

Dagur 25

12:30 1 low carb tortilla, 2 spæld egg, nokkrir bacon strimlar, pepsi max.
17:15 1 jacob´s fíkjukex, pepsi max
18:30 1 ferskja
19:30 kjúklingabringa í Uncle´bens karrýsósu, 1 1/2 dl. hýðishrísgrjón, pepsi max
20:45 nokkur jarðaber
21:15 Harðfiskur með L&L, pepsi max

Já frekar undarlegur dagur, vaknaði seint enda fór ég út að borða í gærkveldi með vinkonum mínum og kom seint heim. Einnig var ég á fartinu í dag, fórum í Árbæjarsafn við skötuhjúin og þrömmuðum þar inn í hvert einasta hús :) Ágætis hreyfing það :) En eins og þið sjáið þá er þetta frekar undarlegur matardagur en enga að síður þá svindlaði ég ekkert svakalega ef við tökum frá þessa fíkjukexköku (var að deyja úr svengd og þetta var það eina sem ég fann heima hjá foreldrum mínum sem eru í útlöndum nota bene). Er sko svakalega stolt af sjálfri mér vegna dagsins, húrra fyrir mér!!!

Saturday, July 03, 2004

109,5 - 109,7 = 600-800 gr gr bæ bæ

Eins og þið sjáið á tölunum hjá mér þá rokkar þessi digital vigt mín eitthvað þessa vikuna, en ég ætla bara að segja að ég hafi misst 600gr því þá er maður ekkert svekktur í næstu viku :) Reyndar í gær sýndi vigtin heilt kíló í missi (109,3), en ætli þessar pylsur í gær hafi ekki haft sitt að segja í því máli :) Allavega horfi ég bjartsýn fram á veginn og ætla að halda mínu striki. Í dag er nammidagur og ég ætla að leyfa mér að fá mér ýmsar kræsingar ásamt því að brenna þeim jafn hraðan í búðarrápi á útsölum hahahhha see ja girls later..

Friday, July 02, 2004

Soya- óhollt???

Hæ hæ allar fróðar kellur
Nú vil ég spyrja ykkur hvort það sé rétt að soya vörur séu óhollar. Ég spurði inn á femin.is um soyahveiti og hvernig ætti að nota það. Ég fékk svar frá einni sem var með link inn á fjöldan allann af síðum þar sem læknar halda því fram að soya sé ekki gott fyrir mann. Humm hvað með þá kolvetnasnauðu vörurnar sem nær allar innihalda eitthvað soyja? Lilja this one is for you i think :)

Dagur 24

7:30 2 amino lean+1 fjölvítamín, létt húsavíkurjógúrt.
10:00 1 múslí rúnstykki með rúsínum, L&L, vatn
12:00 kaldir kjúklingabitar (afgangar), fullt af fersku salati, örlítið af pítusósu, vatn
15:00 1 gult epli
17:30 1 ávaxtastöng - var eitthvað svo svöng
21:00 Grillpartý: 4 pylsur án brauðs, sinnep, tómatsósa, smá steiktur laukur, fullt af fersku salati m/fetaosti, pepsi max
Nokkrar kasjúhnetur

Er mjög stolt af sjálfri mér fyrir að hafa horft á aðra borða franskar og höfðingjaost en þetta tvennt er mjög svo girnilegt í mínum augum - stóðst það alveg...húrra fyrir mér!

Tölur koma í fyrramálið...spennó spennó

Thursday, July 01, 2004

Dagur 23

7:30 létt húsavíkur jógúrt - arrgg er alltaf að gleyma að taka amino lean og fjölvítamínið...er svo sybbin þessa dagana.
9:30 1 ávaxtastöng (fruitmix-mjög góð), 1 tómatur
12:00 1 kjúklingaleggur, 1 kjúklingahálfmáni fylltur með osti, fullt af fersku salati með smá fetaosti, smá mais/ananas salat með sýrðum rjóma, vatn
15:00 1 gult epli
18:30 1 grilluð lambasneið, rjómasteikt grænmeti, pepsi max

Hljómar eins og ég hafi borðað mikið í dag, en þetta var allt mjög hóflega skammtað. Farin að hlakka til laugardagsins þegar nýjar tölur koma...er næstum því viss að heilt kíló fari líka í þessari viku, en við skulum bara sjá hvað setur :)

Wednesday, June 30, 2004

Dagur 22

7:30 sykurlaus jarðaberjagrautur með rjómablandi (steingleymdi að taka amino lean og fjölvítamínið)
9:30 1 ávaxtastöng (banana-ágæt), 1 tómatur
12:00 örlítið af kartöflugratín með bacon og grænmeti, fullt af fersku salati með fetaosti, vatn
15:00 1 appelsína
18:30 1 lítill heilsuréttur frá Nings-ristuð brún hrísgrjón með kjúkling og grænmeti, sprite zero
19:15 ca 60 gr kasjúhnetur.

Ekki alveg nógu ánægð með þetta nart í mér eftir kvöldmat...er á túr svo það gæti verið skýringin.

Tók meðvitaða ákvörðun að borða kartöflugratínið í hádeginu...langaði ekki í salatið eingöngu. En þetta var lítið og ég er sátt svo það er í góðu :)

Er þokklega sátt við daginn bara.